Fréttir 2002

7/11 2002

Úthlutun úr Styrktarsjóði EBÍ lokið

Á fundi stjórnar EBÍ þann 11. október var úthlutað styrkjum úr Styrktarsjóði EBÍ. Met var slegið í fjölda umsókna er bárust. Alls var sótt um styrk til 49 verkefna frá 40 sveitarfélögum, en það er um helmingur aðildarsveitarfélaga EBÍ.

Til úthlutunar komu fjórar milljónir og voru samþykktar styrkveitingar til 20 verkefna.

Styrktarsjóður EBÍ hefur verið starfræktur frá árinu 1996. Samtals hefur verið úthlutað styrkjum að upphæð 18.950.000 til 75 verkefna frá 56 sveitarfélögum.

Lista yfir úthlutanir sjóðsins frá upphafi er að finna annars staðar á heimasíðunni.

7/11 2002

Brunavarnaáætlanir sveitarfélaga

Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands hefur styrkt gerð dæmigerðrar brunavarnaáætlunar fyrir sveitarfélag, en slökkviliðsstjóri skal semja brunavarnaáætlun fyrir sitt starfssvæði samkvæmt 5. málsgrein 16. gr. laga um brunavarnir og leggja fyrir sveitarstjórn til samþykktar

Áætlunin er samin af Óskari Óskarssyni slökkviliðsstjóra á Sauðárkróki,er hún mjög til fyrirmyndar og er birt á heimasíðu Brunamálastofnunar þannig að aðrir slökkviliðsstjórar geti haft hana sem fyrirmynd að vinnslu brunavarnaáætlunar hjá sér .

15/10 2002

EBÍ greiðir 150 milljónir króna í ágóðahlut til aðildarsveitarfélaga

Stjórn Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands hefur ákveðið á grundvelli samþykkta fulltrúaráðs félagsins að greiða samtals 150 milljónir króna í framlag til ágóðahlutar í ár. Greiðslan rennur til þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að Sameignarsjóði EBÍ í réttu hlutfalli við eignaraðild þeirra að sjóðnum. Aðildarsveitarfélögin eru 81.

Akureyri fær hæstu greiðsluna, eða rúmar 16 milljónir króna. Til Kópavogs renna tæpar þrettán milljónir, Reykjanesbær fær rúmar tíu milljónir í sinn hlut, Ísafjarðarbær rúmlega sjö milljónir og Vestmannaeyjabær rúmar sex milljónir.

Í samræmi við samþykktir félagsins mælast stjórn og fulltrúaráð EBÍ til þess við sveitarfélögin að þau verji framlaginu meðal annars til forvarna, greiðslu iðgjalda af tryggingum sveitarstjórna og brunavarna í sveitarfélaginu.

Ágóðahlutur aðildarsveitarfélaganna frá EBÍ hefur m.a. orðið til þess að nokkur sveitarfélög hafa endurnýjað slökkvibifreiðar sínar svo og annan slökkvibúnað.

EBÍ hefur um langt skeið greitt aðildarsveitarfélögum framlag til ágóðahlutar af starfsemi sinni. Slíkar greiðslur hófust árið 1934 með samningi Brunabótafélags Íslands við sveitarfélög um fjármögnun slökkvitækja. Árið 1955 var gefin út sérstök reglugerð um þessar greiðslur, og aftur árið 1985. Á síðustu fimm árum hafa aðildarsveitarfélögin fengið samtals greiddar um 680 milljónir króna í ágóðahlut. Frá upphafi hefur EBÍ því greitt hundruðir milljóna króna til aðildarsveitarfélaga, miðað við verðlag í dag.

Nánari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir, EBÍ. (Sími: 544-5070).